

Sólon
Ofurhetjan frá sólinni
Sólon elskar að heimsækja jörðina og leika sér, syngja lög og fræða börn. Sólon er líka með ofurkrafta. Með því að segja ofurhetjuorðin þrjú; SÓLON AF STAÐ þá hverfur hann og birtist hvar sem hann vill.
Komdu með Sóloni í litrík ævintýri full af söng, gleði og lærdómi.



Sólon Barnaefni er lítið fjölskyldufyrirtæki sem við, Einar Björn og Íris Mist, stofnuðum í kjölfar þess að frumburðurinn okkar fæddist.
Sem nýbakaðir foreldrar fundum við fljótt fyrir því að okkur þótti vanta meira af aðgengilegu og vönduðu barnaefni á íslensku. Við ákváðum því að taka af skarið og prófa okkur áfram með að búa til íslenskt barnaefni á YouTube.
Viðtökurnar hafa farið langt fram úr okkar björtustu vonum og við erum ótrúlega þakklát fyrir þann hlýhug og stuðning sem Sólon Barnaefni hefur fengið.
Markmið okkar er einfalt: að skapa skemmtilegt og vandað efni á íslensku sem börn hafa gaman af og foreldrar geta treyst.
Smelltu á þátt til að horfa - eða opnaðu alla rásina fyrir neðan.
Nýir þættir, söngvar og klippur - allt á YouTube-rás Sólons. Smelltu og horfðu með!
Opna rás SólonsNammilagið, Danslagið og fleiri - öll lögin eru á Spotify. Smelltu og spilaðu!
Hlusta á SpotifyHittu ofurhetjurnar og vinina sem fylla ævintýrin af gleði, söng og sprelli.






Yndisleg saga með flipum um heimsókn Sólons á sveitabæ. Opnaðu flipana og komdu með í ævintýrið!
Kaupa bókina →Bolir, hettupeysur, bakpokar og sundpokar - fáðu Sólon heim úr Vefverslun Símans.
Skoða búðina →